Pro Comp Xtreme MT/2 40″ radial dekkin eru einstök og hönnuð fyrir öfluga jeppa og fjórhjóladrifsbíla. Hönnunin tekur mið af blönduðum akstri á þjóðvegum yfir í mjög krefjandi jeppaleiðir. Þú upplifir þægilegan þjóðvegaakstur en ert síðan á öruggum hjólbörðum með gott grip og öfluga drifgetu þegar þú mjakast yfir erfiðan Krakatindaslóðann til að skoða austurhluta Heklu.
Metnaðarfull hönnun á mynstri dekkjanna var útfærð með fjölbreytilegum möguleikum í tölvuhermi til að ná óviðjafnanlegu gripi og öryggi án þess að framkalla hávært veghljóð. Þá fékk hreisunargeta dekkjanna í snjó og leðju sérstaka athygli og var aukin til muna.
- Míkróskeranleg
- Neglanleg
- Heilsársdekk